F. 4
1/2 L nautasoð
2 msk. smjör
2 stórir skarlottulaukar, í þunnum sneiðum
2 hvítlaukrif, í þunnum sneiðum
3 sneiðar bacon, í litlum bitum
2 dl hvítvín
2 tsk. gróft sinnep
1 grein af timian
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Sítrónusafi
1 tsk. rauðvínsedik
15 gr. ósalt smjör, ískalt, í bitum
Fersk steinselja
Hér er á ferðinni geggjuð steikarsósu, hún er byggð á uppskrift, sem er yfir 500 ára gömul frönsk klassík. Þessi útfærsla, er frá eðalkokkunum á veitingastaðnum Fallow í London. Góð steik er dásamleg og punkturinn yfir i-ið, finnst mér, er góð sósa, til að velta steika bitanum upp úr. Allir þekkja frönsku Béarnaise sósuna, eða grænu argentínsku Chimichurri sósuna. Þessi er allt öðruvísi, með brúnu sinnepi, baconi og hvítlauk, frábær viðbót í vopnabúrið. Endilega prófaðu :-)
Baconið er skorið í litla bita, smjörið er brætt á meðalstórri pönnu og baconið steikt stökkt á pönnunni. Baconið er tekið upp úr, en fitan skilin eftir. Skarlottulaukurinn er steiktur ljósbrúnn. Þá er hvítlauknum og timianinu bætt út á pönnuna og steikt í smá stund. Hvítvíninu er hellt á pönnuna og öll steikar skánin er skafin upp. Soðið niður um helming, síðan er soðinu er hellt út á pönnuna og baconinu bætt út í hana, soðin niður í þá þykkt sem þér finnst best, þá er sinnepinu, edikinu og smá kreistu af sítrónusafa bætt út í smakkað til með salti og pipar. Pannan er tekin af hitanum og köldu smjörinu hrært út í sósuna og að síðustu er steinseljunni bætt út í. Borin á borð með góðri nautasteik.