F. 8
12 jalapeno chili, með stilk
170 gr. rifinn Cheddar ostur
120 gr. rjómaostur, við stofuhita
2 vorlaukar, þunnt skornir
2 tsk. lime safi
1 tsk. chili duft
1/2 tsk. salt
1 msk. olía
1/2 bolli Panco rasp
Namm, namm.. Hér er á ferðinni partýmatur sem allir elska. Fylltir jalapenos piprar eru sjúklega góðir, volgir úr ofninum, með ísköldum drykk í góðra vina hópi. Það er lítið mál að búa þá til, hægt að gera það fyrr um daginn og stinga þeim svo í ofninn, þegar þú ert tilbúin a bera þá á borð. Endilega prófaðu ;-)
Jalapenos piprarnir eru þvegnir og þerraðir vel, og skornir eftir endilöngu (reyna að hafa hluta af stilknum á báðum hliðum). Fræin og hvíta himnana inn í þeim, er tekin úr, nema þú viljir hafa fyllinguna í sterkari lagi, þá skaltu geyma hluta af fræunum og bæta henni fyllinguna. Panko raspið er sett á pönnu með 1 msk. af olíu og ristað gyllt, á meðalhita, ca. 5-10 mín., sett á disk og kælt. Cheddarinn, rjómaosturinn, vorlaukurinn, lime safinn, chili duftið og salt er hrært saman í skál og smakkað til hversu sterka þú vilt hafa fyllinguna. Fyllingunni er jafnað í jalapenos helmingana og síðan er ristaða raspið sett ofan á fyllinguna og þrýst létt á með lófanum. Tilbúnu helmingarnir er settir á bökunarplötu og bakaðir í 15-20 mín. Settir á fat og bornir á borð.