Jólarúgbrauð

Það sem til þarf er:

4 lítil rúgbrauð

2 bollar rúgmjöl

2 bollar hveiti

2 bollar heilhveiti

3 tesk lyftiduft

2 tesk salt

2 tesk sódaduft

1 1/2 bolli síróp

4 bollar súrmjólk

Árleg sending af jólarúgbrauði frá elsku mömmu. Dásamlegt með síldinni eða jólapatéinu og svo bara með þykku lagi af köldu smjöri.  Mér finnst það ómissandi fyrir jólin :-)

Svona gerir mamma:

Ofninn er hitaður í 250° C.  Öllum hráefnunum er  blandað saman í skál.  Ég nota 4, 1 L álform og bý til lok úr álappír til að setja yfir brauðin og spreyja allt vel með olíu.  Ég læt sjóðandi vatn í ofnskúffuna og læt hitan vera það mikinn  í ofninum aðvatnið í skúffunni sjóði.  Deginu er jafnað milli formanna og þeim lokað með ál lokunum og þau sett í skúffuna.  Það þarf að passa að það sé alltaf nóg vatn í ofnskúffunni, ef það þarf að bæta í hana þarf vatnið að vera sjóðandi.  Brauðin eru bökuð fyrstu 15 mín. á 250°C síðan er hitinn lækkaður í 200°C og brauðin bökuð áfram í 1 klst og 15-20 mín., eða þar til þau eru fullbökuð. 

Verði þér að góðu:-)

Hátíðlegt 🎄