Kókos Margaríta

Það sem til þarf er:

f. 4

4 bollar mulinn ís

1 dl Tequila

0.6 dl ananassafi

1 dl Triple Sec eða Cointrau

3.6 dl kókosmjólk

2 msk. kókorflögur

SÓL og sumar.... eða haust og SÓL .... skiptir ekki öllu máli....  allavega frábær kokteill sem er tilvalinn í vinkonu hittinginn.  Suðræn seyðandi tónlist og samba sveifla, með mjöðmunum á eldhúsgólfinu, er nauðsynleg til að fá fulla upplifun í að minna okkur á heitari daga sem eru LÖNGU liðnir :-)

Svona gerir þú:

Eins einfalt og það getur verið.  Klaki, Tequila, ananasafi, Triple Sec og kókosmjólk sett í blandara og hrist þangað til það verður freyðandi og rjómakennt.  Brúnin á Margarítaglösunu  er bleytt og henni stungið ofaní kókosflögurnar, blöndunni er svo skipt á milli glasanna og nokkrum kókosflögum dreyfi í miðjuna.  Skál!!

Njóttu vel :-)

Go nuts 🥥🖤