Bönný

Það sem til þarf er:

F. 2

80 ml Gin

50 ml Amaretto

50 ml rjómi

1 tsk. lemon curd

1/2 tsk. vanillu paste (fæst í Krónunni)

Lúka af klaka

Blóm til að skreyta með

Það er komið páskafrí og það er kominn kokteiltími 😎 Þessi er svooo góður, hristu í einn eða tvo.....

Svona geri ég:

Klakinn er settur í kokteilhristarann. Rjómi, lemo curd og vanillu paste er þeytt saman í lítilli skál þar til allt er vel blandað saman. Gini og Amaretto er hellt í kokteilhristarann, ásam rjómamaukinu. Lokið sett á hritarann og hrist þar til blandan er mjög köld, síað í falleg kokteilglös og notið.

Verði þér að góðu :-)

Bönný 🍸🐰🌷