Harissa lamborgarar með feta og klettasalati

Það sem til þarf er:

f. 2

250 gr. lambahakk

1/2  tsp. cumin

Cayenne pipar

2 tbsp. harissa paste

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar

60 gr. Feta ostur

Olive oil

 

Meðlæti:

2 pítu brauð

Klettasalat

Grísk jógúrt


Hot, hot... nei, ekki á hesti.  En þessi lamborgari er í sterkari kantinum, en samt ekki neitt of mikið.  Lambið og harissa maukið eiga rosa vel saman og svalinn á móti kryddinu kemur úr jógúrtinni og brauðinu. Geggjaður á útigrillið eða frábær að steikja borgarann á grillpönnu í eldhúsinu.

Svona geri ég:

Hakkinu og kryddinu er hnoðað vel saman.  Deiginu er skipt í tvo jafna hluta.  Fetaosturinn er mulinn í miðjuna á hvorum borgara og deiginu vafið utanum ostinn og lokað vel.   Grillpanna er hituð  á meðalhita, borgarana penslaðir með olíu og steiktir í 5-6  mín.   Pítubrauðin eru hituð í brauðristinni.  Þau eru svo fyllt með grískri jógúrt, klettasalati og lamborgara.  Þessi borgari er frábær á útigrillið.

Verði þér að góðu :-)

Hot stuff 🌶️