Jarðarberjasalat með kandíseruðum pecanhnetum

Það sem til þarf er:

F. 4

1 eggjahvíta

1/4 bolli púðursykur

1 bolli pecan hnetur

4 msk. jómfrúar olía

4 msk. balsamic edik

Sjávar salt og nýmalaður svartur pipar

6 bollar salat lauf

2 bollar jarðarber, skorin í tvennt

Á sumardegi er alltaf gaman að borða eitthvað í léttari kantinum, ekki verra ef það eru "seasonal" hráefni með í máltíðinni. Þetta salat er frábært sem léttur forréttur eða hádegismatur, þá f. 2.

Svona er farið að:

Ofninn er hitaður í 150°C, og bökunarpappír er settur á ofnplötu. Í stórri skál ereggjahvítan og 1/4 bolli af púðursykrinum þeytt saman, hnetunum er svo velt uppúr leginum svo að allar hneturnar húðist vel. Hellt á bökunarplötuna, dreyft úr, og bakað í 30 mín., kælt. Balsamikedikið, olían, salt, pipar og klípa af púðursykri er sett í krukku með loki og hrist i 1/2 mín., þar til allt er blandað vel saman, smakkað til. Jarðarberin eru skoluð og skorin í 4 hluta hvert. Salatlaufunum er skipt á milli diska ásamt jarðarberjum og hnetum, dressingunni er drussað yfir og síðan borið á borð. Það er svo þitt val hvort þú hefur með brauð og smjör eða olíu til að dýfa brauðinu í.

Verði þér að góðu :-)

Svo mikið gott... mmmm 🍓