Strawberry Fizz

Það sem til þarf er: 

f.2

8 stór íslensk jarðarber  (ca. 125 gr.), eða frá Driscolls, skoluð og laufhreinsuð

3 dl af spænsku Cava eða ítölsku Prosecco (freyðivín)

Mmmm......... sumarhiti og yndislegur tími. Menningarnótt framundan og Reykjavíkur maraþonið, sannkölluð veisla um helgina.  Ég vona að helgin verði frábær hjá þér.  Chin, chin  ;-)

Svona geri ég:

Skerðu 2 þykkar sneiðar úr miðjunni á einu jarðarberi og geymdu til skreyta 2 kampa-vínsglös með.  Annars eru jarðarberin sett í blandara og maukuð.  Maukinu er skipt á milli 2ja kampavínsglasa og þau skreytt með jarðarberja  sneiðunum.  Glösin eru fyllt, varlega, með ísköldu freyðivíni.   Fyrir þá sem verða á bíl um helgin, en langar í freyðandi Strawberry Fizz, þeir skipta freyðvíninu út fyrir lime- eða sítrónu sódavatn í staðinn fyrir freyðivínið.

Skál í boðinu :-)

Gone fishing 😍