Bökuð egg með tómat og beikoni

Það sem til þarf er:

f. 4

200 gr.  gott beikon

1 msk. olífu olía

1 rauðlaukur, fín saxaður

1 hvítlauksrif, marið

1-2 msk. reykt paprikuduft

1 dós saxaðir tómatar

2 msk. tómatsósa

1 rauð paprika, fræhreinsuð og skorin í litla bita

4 egg

Brauð til að bera fram með

Þessi egg, eru spænsk ættuð og aðeins öðruvísi, útaf reykta paprikuduftinu og tómötunum.  Skemmtileg tilbreyting :-)

En til að prófa þarftu að:

Hita ofninn í 200°C.  Taktu til hliðar 4 sneiðar af beikoninu en skerðu restina í stóra bita.  Olían er hituð á pönnu og er laukurinn, hvítlaukurinn og beikonið steikt í 2-3 mín., eða þar til laukurinn fer að meyrna.  Bættu restinni af hráefninu við, en ekki eggjunum, og láttu malla í 10 mín.  Þessu er svo skift á milli 4 lítilla eldfasta diska eða sett í einn stóran.  Beikonsneiðarnar sem voru teknar til hliðar eru hringaðar í miðjunni á hverjum disk eða með jöfnu bili ef þú setur þetta í eitt fat og 1 egg síðan brotið ofaní hvern beikonhring.  Bakað í 20 mín., og borið fram með góðu skorpu brauði.

Verði þér að góðu :-)

Smóký upphaf á deginum 🍅