Súkkulaði Chai

Það sem til þarf er:

F. 4

2 pokar af svörtu tei

1 bolli sjóðandi vatn

1/4 bolli sykur

1/4 bolli kakó

4 bollar mjólk

1/2 msk. vanilludropar

1 tsk. kanill

1 tsk. nýrifin múskathneta

1-2 kardimommu dropar

Þeyttur rjómi

Rifið múskat

Sprinkles

Það er fátt betra en að fá bolla af krydduðum, heitum ljúffengum drykk með stórum kúf af þeyttum rjóma ofan á, á köldum degi. Ef þú elskar chai eins og ég, er súkkulaði viðbótin rosalega góð. Ef þú ert ókunnug/ur chai tei, áttu von á góðum drykk þegar þú smakkar ;D

Svona geri ég:

Tepokarnir eru settir í pott og sjóðandi vatninu er hellt yfir tepokana og þeir látnir trekkja í 3-5 mín. Þá eru þeir teknir upp úr og sykri og kakói hrært út í tevatnið. Hitað að suðu, þá er mjólk, vanillu, kanil, múskati og kardimommu dropum bætt út í og hitað að suðu aftur. Smakkað til og síðan hellt í bolla og toppað með stórum topp af nýþeyttum rjóma og smávegis af rifnu múskati og sprinkles af því það eru jól.

Verði þér að góðu :-)

Þessi bolli hlýjar þér ☕💜🤍