Mille-feuille

Það sem til þarf er:

Ca. 7 samsettar kökur

330 ml mjólk

4 eggjarauður

110 g sykur

2 msk. hveiti

1 msk. mais mjöl

1 tsk. vanilludropar

50 g smjör

1 msk. hunang

55 g ristaðar möndluflögur, muldar milli handa

2 blöð filodeig

180 rjómi

300 g hindber

Mille-feuille þýðir þúsund lauf og vísar til „þúsund laganna“ sem myndast þegar smjördeig lyftist og bakast en kakan er oftast bökuð úr smjördeigi. Ég nota hinsvegar filodeig hérna sem mér finnst skemmtileg tilbreyting, það er svo stökkt og ekki eins matarmikið og smjördeig, sérstaklega ef kakan er notuð sem eftirréttur.  Þetta er ekki flókin kaka.

En svona gerum við:

Mjólkin er hituð í potti. Hrærið saman í skál eggjarauðum, sykri, hveiti, maismjöli og vanillu og þeytið heitri mjólkinni rólega samanvið. Blandan er sett í pottinn og hituð þar til hún fer að malla og þykkna. Þá er hún sett í skálina aftur, hulin með plast filmu og kæld í allavega 1 klst. Rjóminn er þeyttur og blandað varlega saman við eggjakremið.  Ofninn er hitaður í 180-200°C. Möndluflögurnar eru settar á álpappír og ristaðar í 3-5 mínútur, kældar. Smjör og hunang er hitað saman í potti. Annað blaðið af filo-deiginu er lagt á klædda bökunar-plötu og smurt með hunangssmjörinu og möndlum drussað yfir, þá er hitt blaðið lagt ofan á, smurt aftur og möndlurnar efst.  Filo-deigið er reitað niður í 7x7cm ferninga og skorið vel í deigið. Bakað í um 5 mínútur eða þar til filoið er gyllt, kælt. Þetta má gera daginn áður.

Samsetning:  

1 ferningur af filo-deigi settur á disk og ein kúfuð matskeið af eggjakremi sett á hann, síðan hindber og deigferningur, síðan er þetta endurtekið. Það er fallegt að drussa flórsykri yfir kökuna og útá diskinn í lokin.

Verði þér að góðu :-)

Þúsund lauf 🍂🍃