Lambainnanlæri með graskersmauki

Það sem til þarf er:

f. 2-3

1/2 kg. lamba innanlærisvöðvi

1/2 msk. cuminfræ

1/2 msk. kóríarnderfræ

1 hvítlauksrif, marið

4 msk. ólífu olía

Graskersmaukið:

500 gr. Butternut squash skrælt og saxað í bita

smjör

1/2 búnt kóríanderlauf

1 búnt ferskur grænn aspas

Romantískt fyrir 2 ;-J  

Rosalega gott á grillið og svo einfalt. Ferskt og létt með mjúku kryddbragði án þess að vera sterkt.  Love it!!

Svona gerði ég:

Cuminfræ og kóríanderfræ eru marin í mortéli.  Fræum, hvítlauk,salti og pipar er  blandað saman við olíuna og smurt á kjötið og látið marinerast í allavega 2-3 tíma, eða yfir nótt.

Graskerið:  

Graskerið er soðið það til það er meyrt.  Þá er það maukið og smjöri er blandað saman við, kryddað með salti, pipar og söxuðum kóríanderlaufum er bætt útí. Ekki henda kryddleginum það er gott að dreypa honum yfir kjötið eftir steikingu. Ef þú grillar kjötið úti er það grillað á efri grind á gas grilli í 25 mín., snúið af og til, svo látið hvílast eftir steikingu í 10 mín.   Ef þú steikir vöðvann í ofni er hann steiktur í 25 mín. á 180° C, og líka látinn standa í 10 mín.  Aspasinn er soðinn í 5 mín. í söltu vatni og borinn fram með.

Verði þér að góðu :-)

Ooooh 🥩