Smjörsteiktar perur
Það sem til þarf er:
Það sem til þarf er:
F. 4
4 þroskaðar perur
Sítrónusafi
Smjörtil að steikja uppúr
Ljúft og gott meðlæti með önd eða villibráð og einfalt að útbúa. Endilega prófaðu :-)
Svona geri ég:
Svona geri ég:
Perurnar eru þvegnar vel og þerraðar. Þær eru skornar í 4 báta, langsum, kjarninn er skorinn varlega frá. Sítrónusafi er kreistur yfir til að verði ekki brúnar. Smjör er brætt á pönnu og peru bátarnir steiktir þarf til þeir eru rétt orðnir meyrir, tíminn fer eftir því hvað perurnar eru þroskaðar. Smakkaðar til með meiri sítrónusafa. settar á fallegan disk og bornar á borð með steikinni þinni.
Verði þér að góðu :-)
Verði þér að góðu :-)
Yndi 🍐
Yndi 🍐