Sykraðar seasamgulrætur

Það sem til þarf er:

f. 6

500 gr. gulrætur, skrældar og skornar langsum í lengjur

4 msk. ljós púðursykur

4 msk. smjör

1 msk. ljós sesamfræ

Sjávarsalt

Þessar eru svo góðar að það er næstum hægt að flokka þær sem sælgæti. Frábærar með öllum stórsteikum og hátíðarmat :-)

Svona gerum við:

Gulræturnar eru skrældar og þvegnar. Þú ræður svo hvernig þú skerð þær, eða hvort þú hefur þær heilar ef þær eru litlar. Guræturnar eru soðnar í saltvatni í 5 mín., þar til þær eru næstum meyrar. Vatninu er hellt af þeim og gulræturnar settar aftur í pottinn, ásamt smjöri, sykri og sesamfræjum og steikt á miðlungshita í 5- 10 mín., hræt í við og við, þar til þær eru karmelliseraðar og gylltar. Smá sjávarsalti mulið yfir.

Verði þér að góðu :-)

Gulrótar nammi 🤗