Ferskt aspaspestó

Það sem til þarf er:

f. 2  með pasta, sem máltíð

1 búnt ferskur aspas, skorinn í bita

3 basil lauf

1/4 bolli saxaðar pecan hnetur

1/4 bolli rifinn parmesan ostur

1 lítið hvítlauksrif, marið

3 msk. ólífu olía

Salt og pipar

250 gr. pasta soðið skv. leiðbeiningum á pakka


Það varð ást við fyrsta smakk á aspas pestóinu :-) Hvort sem það er dýrðarinnar sumardagur og þú sest út og borðar al fresco eða harður vetur, er þetta alltaf alltaf gott.

Svona er farið að:

Öllu nema pastanu skutlað í matvinnsluvél og maukað, smakkað til með salti og pipar. Pastað er svo soðið skv. leiðbeiningum al dente, en geymdu nokkrar skeiðar af soðvatninu.  Pestóinu er blandað saman við pastað ásamt 2-3 msk. af soðvatninu.  Borið  fram með salti, nýmöluðum svörtum pipar og hrúgu af nýrifnum Parmesan osti.  Geymist í ísskáp í 2-3 daga. Ekki hægt að frysta.

Verði þér að góðu :-)

      Spergill💚🥢