Cheddar eggjabaka

Það sem til þarf er:

F. 4

50 gr. brætt smjör

8 sneiðar bacon

8 egg

4 lúkur rifinn cheddar

Svartur pipar

Í morgum varð ég að fá eitthvað komfý og kósý, þegar ég sá út um gluggann,. ..brrrr. Hjá mér þýðir það yfirleitt eitthvað með eggjum/ baconi, hehe.. Fyrir valinu í morgun varð þessi cheddar eggja baka og hún klikkaði ekki, gerði allt fyrir mig sem ég þurfti á að halda, endilega prófaðu ;-)

En svona er þetta:

Ofninn er hitaður í 200°C. 4 litlar ramekin skálar eru mjög rausnalega smurðar með smjörinu. Bacon sneiðarnar eru skornar í tvennt og settar í botninn og upp með hliðunum á skálunum. 2 egg eru síðan brotin varlega ofaná baconið, piprað og saltað smávegis. Siðan eru skálarnar settar í stórt eldfast fat í vatnsbað (heitt vatn sett upp á rúmlega miðjar litlu skálarnar) og bakað í 8-10 mín., eða þar til osturinn er bráðinn og eggin elduð eins og þú vilt hafa þau. Svartur pipar er malaður ofaná ostinn svo finnst mér nauðsynlegt að hafa með, ný ristað brauð, smjör og góða sultu og sterkan kaffi-bolla. Góðan daginnn sunnudagur.

Verði þér að góðu :-)

Komfý & kósý 🧀🥚