Ca. 1 - 1 1/2 - 2 kg súpukjöt (fitumagn í kjötinu er smekksatriði, en mér finnst það ekki mega vera of magurt) skorið í munnbita
2 lítrar vatn
1/3 poki af súpujurtum
2 laukar, saxaðir
1 púrra (passa að skola alla mold af henni), söxuð
4 gulrætur, í miðlungs þunnum sneiðum
1 búnt steinselja, smátt söxuð
4 teningar af lambakrafti frá Knorr
1 tenignur af grænmetikrafti frá Knorr
3 teningar af tærum (klar) krafti frá Knorr
2 stór hvítlauksrif, fínt söxuð
½ rautt chili , fræhreinsað og smátt saxað
Smakkað til með salti og pipar og meiri krafti, ef þarf
Íslensk kjötsúpa, fátt er betra á köldum degi.... eða bara oft :-)
Láttu suðuna koma upp á kjötinu, og taktum froðuna sem kemur upp með spaða og hentu henni. Láta sjóða í ca. 20 mín. Þá er lauk, jurtunum, púrru, gulrótum, steinselju, hvítlauk, chili og súputeningum, bætt út í og látið malla í 30 mín. á lágum hita. Smökkuð til með salti og pipar. Mér finnst gott að láta hana kólna alveg, og hita hana svo upp aftur þegar ég ætla að borða hana. Súpan verður yfirleitt betri með tímanum. Svo er að sjóða fullan pott af nýjum kartöflum, rauðum og gulum, rófum og meiri gulrótum. Það er sérviska í mér að hafa hvorki kál, haframjöl eða annað í súpunni, en um að gera að bæta í hana ef maður vill. Það nær manni engin kvefpest með svona kjarnmikinn mat í maganum... umm!