Frönsk lauksúpa

Það sem til þarf er:

f. 6

75 gr. smjör

8 stórir eða 12 litlir laukar, sneiddur í miðlungs þykkar sneiðar (ég nota allskonar lauka, rauða og gula)

2 larviðarlauf

Steinseljustilkar

Timian greinar

6 hvítlauksrif, marin

1 1/2 msk ljós púðursykur

2.5 dl hvítvín

50 ml. brandý eða koníak

1.7 L gott nautasoð (t.d. í fernunum)

12 sneiðar af snittubrauði

250 gr. sterkur ostur, t.d. Cheddar, Jarinn, sterkur Gouda eða restar af ostum sem til eru, rifinn

Frönsk lauksúpa hlýjar ekki bara skrokknum, heldur sálinni líka og lyftir andanum uppúr hversdagsamstrinu.  Hún er rómantísk, seyðandi og fullkominn unaður á dögum eins og ídag.  Einn af stóru kostum súpunnar, er að venjulega er alltaf allt til í hana í skápunum hjá okkur.  Við eigum hana skilið í kvöld, er það ekki ;-)

Svona gerum við:

Bakarofninn er hitaður í 200°C.  Brauðið er bakað í 8-10 mín., þar til það er þurrt og létt  ristað. Smjörið er brætt í stórum potti með loki.  Lárviðarlaufið, timian- og steinseljugreinarnar eru bundnar saman og sett útí pottinn ásamt lauknum og vel af salti, hrært í lauknum svo hann sé allur smjörhúðaður. Hann er látinn malla á vægum hita undir loki  í 45 mín., Það er gott að hræra reglulega í, en ekki brúna hann.  Kryddgreinarnar eru teknar uppúr og þeim er hent.  Hvítlauknum er bætt útí og hann mallaður með í 3-4 mín., Þá er púðursykrinum bætt útí og mallað áfram í 10-15 mín., þar til hann er orðinn djúpgulur og karamelliseraður.  Hitinn er hækkaður og víniu bætt útí og soðið niður í 3-4 mín., síðan er soðinu bætt útí og hitinn lækkaður aftur og súpan látin sjóða rólega í 10 mín.  Kryddað til með salti og pipar.  Kveikja á grillinu í ofninu.  Súpunni er skipt á milli eldfastra súpuskála, 2 sneiðar af brauði settar ofaná hverja skál og ostinum skipt á milli þeirra.  Grillað þar til osturinn er gylltur og búbblandi.  Borið á borð.  Passa sig súpan er HEIT, það er alveg  bannað að brenna sig i munninum, hendir mig samt of oft.. 

Verði þér að góðu :-)

Hér fyrir neðan er samtýningur af myndum af hinum ýmsum lauksúpum sem ég hef gert í gegnum tíðina

J'taime 🥰🥣🧀