Mahogany kjúklingur

Það sem til þarf er:

f. 4

4 kjúklingabringur

Kryddlögur:

3 msk. soyja sósa

1 msk. fiskisósa (nam pla)

3 msk. glært hunang

2 msk. olía

1 msk. sesam olía

4 hvítlauksrif, marin

1 tsk. kínverskt five spcie duft

Sósa:

Sweet chili sósa

Fersk kóriander lauf, söxuð

Frábær og einföld uppskrift á grillið.  Endilega prófaðu ;-)

Svnoa geri ég :

Öllu í marineringun er blandað saman í skál og kjúklingalærunum velt vel uppúr henni.  Stungið í ísskápinn í allavega 5-6 tíma eða yfir nótt.  Þegar á að grilla lærin er marineringin látin leka vel af þeim.  Gott er að pensla henni á lærin á meðan grillað er.  Borin á borð með sósunni og bökuðum kartöflum og góðu salati.

Verði þér að góðu ;-) 

Gott á grillið 🔥