Brulée bláberja ostakaka

Það sem til þarf er:

150 gr. bláber (áttu ekki í frystinum frá því í haust?)

50 gr. sykur

Kanell á nífsoddi

Safi og börkur af 1/2 sítrónu

1 tsk. Mais mjöl og 1 tsk. vatn blandað saman

200 gr léttur rjómaostur

150 gr. grísk jógúrt

1 tsk. vanilludropar

4 hafrakexkökur

4 msk. hrásykur

Dásamleg íslensk haustuppskera, bláber... jummý, Með stökku sykurloki og rjómamauki, bláberin sannarlega njóta sín í þessari samsetningu.

Svona geri ég:

Bláberin eru sett í pott með 1 msk. af sykrinum, kanel og sítrónusafanum, soðið með loki á í 5 mín. þangað til berin eru djúsí og flott. Þá er maismjöls- og vatnsblöndunni hrært útí og hrært í á meðan mallar og þykknar. Skiptu berjunum á milli 4 lítilla hitaþolinna skála og láttu kólna. Síðan hrærirðu saman rjómaost, jógúrt, vanillu, börkinn og restina af sykrinum. Kexið er mulið í skálarna ofná berin svo er ostablandan sett þar ofaná. Að lokum er 1 msk. af hrásykri jafnað yfir ostablönduna, og aðeins vætt í honum með vatni (helst úr spreybrúsa) til að mýkja hann upp. Grillið er hitað á fullt og skálarnar settar undir grilli þangað til sykurinn er bráðinn og stökkur. Ef þú átt logsuðutæki (til eldhúsnota) þá brennirðu sykurinn með því. Svo eru skálarnar látnar kólna í ísskáp í 30 mín. eða þú getur gert þetta fyrr um daginn og átt tilbúið í kælinum.

Verði þér að góðu :-)

Dásamlegt 🤗