Saltkjöt og baunir

Það sem til þarf er:                                                      

Þetta er ekki nákvæm uppskrift, allt ca. :-)

f. ca. 4-6

1 poki gular baunir

Rúmlega 2 kg. saltkjöt, fitumagn eftir þínum smekk 

Meðlæti:

Kartöflur, rófur og gulrætur

Ég er ekki fyrir það að breyta því sem mér finnst fulllkomið.  Auðvitað eru til margar útfærslur af þessum gamla góða rétti, hvert heimili með sína góðu fjölskyldu útgáfu. Hún Anna Kristmundsdóttir, amma mín kenndi mér að sjóða saltkjöt og baunir, allir elskuðu baunirnar hennar.  Hún var fædd árið 1900 vestur í Skálavík, þar var mjög erfitt að draga fram lífið í den.  Hún kenndi mér svo margt um gamlar matarhefðir, sem eru mér kærar, hún kenndi mér að borða og meta fitu, bæði af kjöti og fiski, fitan hélt örugglega lífi í fólki í gamla daga.  Ef ég ætlaði að gera henni gott, keypti ég handa henni bita af feitum súrum bringukolli eða lunda bagga, hún elskaði það.  En, það fylltust allir tilhlökkun, þegar hún dró fram stóra pottinn og fór að undirbúa baunirnar fyrir Sprengidaginn.  Að mínum smekk og fólksins heima, eru þetta allra besta salkjöt og baunir í heimi, alveg eins og Anna Kidda, amma mín gerði.  Svo er að sjá hvað þér finnst :-) 

Svona kenndi Anna Kidda., amma mér að búa til saltkjöt og baunir:

Súpan:  Baunirnar eru lagðar í bleyti í kalt vatn í mjög stórum potti, kvöldinu áður en á að sjóða þær.  Passa að vatnið fljóti vel yfir baunirnar.  Morguninn eftir er vatni bætt í  pottinn, ef þarf og suðan látin koma upp á baununum.  Froðunni sem kemur við suðuna er fleytt ofan af og hent.  Baunirnar eru látnar malla rólega í um 1 klst. þar til þær eru alveg maukaðar, hrært í við og við.  

Saltkjötið:  Það er góð regla að smakka kjötið áður en það fer í pottinn, til að vita hversu salt það er og skola það vel, eða jafnvel leggja það í bleyti í smátíma, í kalt vatn í vaskinum, ef það er mjög salt.  Það er betra að salta súpuna aðeins eftir á, ef þarf, heldur en að hún sé of sölt í grunninn.  Kjötið er sett út í súpuna, suðan látin koma upp og kjötið soðið rólega í súpunni í  40-60 mín. Það þarf örugglega að athuga vatnsmagnið í pottinum og hræra í við og við svo baunirnar brenni ekki í botninum.   Ég mæli eindregið með því að fullelda saltkjötið og baunirnar að morgni eða kvöldinu áður, ef þú hefur tækifæri til þess, vegna þess að þetta er einn af þessum réttum, sem batnar við að kólna og jafna sig og hita svo upp aftur (ath. ekki taka kjötið upp úr súpunni).  Svo þegar þú hitar baunasúpuna upp og hún er sjóðheit, er gott að smakka hana til og bæta í hana salti eða vatni, ef hún er mjög þykk, en hún byrjar að þykkna um leið og hún er komin á diskinn.  Svo eru nauðsynlegt að hafa með nóg af soðnum íslenskum rófum, kartöflum og gulrótum. 

Ekki gleyma að hafa víðu buxurnar með mjúku teygjunni, við höndina, til að skella sér í eftir matinn, það eru allar líkur á ofáti ;)  

Verði þér og þínum að góðu:-)

    Saltjöt og baunir, túkall!!! 🤗🧡