Lemon bars
Það sem til þarf er:
ca. 36 bitar
Í botninn:
2 bollar hveiti
1/2 bolli flórsykur
1 bolli smjör við stofuhita
Fyllingin:
4 egg
2 bollar sykur
1/4 bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
1/4 bollu sítrónu safi
Glassúr:
1 bolli flórsykur
2-3 msk. sítrónusafi
Mamma bakar!! Ég elska allt með sítrónu og þessir sítrónu bitar eru sælgæti. Mátulega sæt/súrir með stökkum botni, namm, namm, enda ekki að spyrja að því sem Mútta mín bakar, það klikkar ekki. Ég skora á þig að prófa.
Svona bakar Mútta:
Botninn: Ofninnn er hitaður í 180°C. hráefni í botninn sett í hrærivél og blandað varlega saman þar til það lýkist brauðmylsnu. Þrýst niður í botninn á ósmurðu 30x20 cm aflöngu formi, bakað í 20-30 mín., eða þar til botninn er ljósbrúnn.
Fyllingin: Á meðan eru eggin létt þeytt í skál með písk, svo er restinni í fyllinguna, nema sítrónusafanum, blandað vel saman við, svo er sítrónusafanum hrært útí. Botninn er tekinn úr ofninum og fyllingunni hellt yfir hann og jafnað út. Bakað áfram í 25-30 min., eða þer til fyllingin er ljósbrún. Klæt alveg, amk. í 1 klst.
Glassúr: Flórsykurinn er hrærður út með nógum sítrónusafa til að gott sé að smyrja honum yfir fyllinguna. Skorið í bita.