Sellerýrótarsúpa með höpuskel

Það sem þarf til er: 

f. 4

2 msk. olía

1 stór laukur, saxaður

500 gr. sellerírót, skræld í stórum bitum

1 stór mjölmikil kartalfa, skræld og grófsöxuð

8 1/2 dl grænmetissoð (ég nota duft frá Oscar og vatn)

1 lárviðarlauf

6 msk. matreiðslurjómi

1 msk. smjör

1 poki stór hörpuskel (ca. 300 gr), afþýdd

Salt og pipar

Steinselja

Meðlæti:

Nokkrar sneiðar af góðu brauði

Er nokkuð komið haust, svona formlega, er það?  Eru ekki allaveg 2-3 helgar eftir, sem maður getur kreist nokkra sumardaga út í viðbót?   Ég ætla allavega að trúa því.  En, mér var samt hálfkalt í gær svo ég eldaði þessa súpu handa okkur GM. Hún er dásamlega góð og leikur við bragðlaukana, ekki beint sumarleg, ekki heldur vetrarleg, heldur dásamleg.  Hún hakaði í öll boxin hjá okkur, ekki verra að hún var einföld að elda.

Svona gerði ég:  

Súpan:  Olían er hituð á stórum potti,  og laukurinn steiktur þar til hann er mjúkur og glær.  Þá er kartöflunni, sellerírótinni og lárviðarlaufinu bætt í pottinn ásamt soði, salti og pipar og mallað rólega undir loki í 25 mín., eða þar til grænmetið er meyrt, tekið af hitanum.   Það er gott að láta grænmetið kólna aðeins áður en öllu er skutlað í matvinnsluvél, eða töfrasprotinn er settur í pottinn og súpan þeytt þar til allt er maukað og flauelsmjúkt.  Súpan er sett í pottinn aftur og 4 msk. af rjómanum hrært útí og súpan hituð varlega aftur og krydduð til, ef þarf.  Hörpuskelin er skorin í báta og ristuð í smjörinu á snarpheitri pönnu í örstutta stund.  Súpunni er ausið í volgar skálar, og restinni af rjómanum lauslega blandað útí, síðan er hörpuskelinni og steinselju dreyft ofaná.  

Brauðið:  Skorið í sneiðar, þær eru settar í brauðristina og ristaðar, nuddaðar með sárinu á skrældu hvítlauksrifi sem er skorið í tvennt, síðan smurðar með smjöri og rifnum parmesan dreift yfir.

Verði þér að góðu :-)

Þessi svíkur ekki😍