Indversk fars flétta
Það sem til þar er:
F. 6
450 gr. nýtt kjörfars
1 1/2 msk. Chipotle paste
1 1/2 grænt cilli, fín saxað
6 stk. vorlaukar, gróf saxaðir
1 búnt kóríander, gróf saxað
1 lime, safi og börkurinn fín rifinn
1 400 gr. dós af nýrnabaunum, vökvinn látinn leka vel af og baunirnar skolaðar vel
1 rúlla smjördeig
1 egg
Oregano
Meðlæti:
Tómatsósa
Sýrður rjómi
Grænt salat
Nú er gamla góð kjötfarsið komið í sparifötin. Ég veit ekki með þig, en ég er alltaf hrifin af góðu kjötfari við og við. Hvort sem það eru kjötbollur í brúnni eða bakað með baconi. Hér er það með indverskum keim, kryddað og klætt í smjördeig til að gefa því sparilegan blæ. Rosalega gott, einfalt ,svo endilega prófaðu :-)
Svona geri ég:
Ofninn er hitaður í 200 °C. Fyrstu 6 hráefnunum í fléttuna er blandað saman í stórri skál. Baunirnar eru létt marðar með gaffli og síðan blandað í farsið. Smjördeiginu rúllað út, (ekki taka pappírinn undan deiginu) og farsinu er jafnað á miðjuna á deiginu, ca. 10 cm þykk rúlla, passa að fara ekki með það niður í endana, svo hægt sé að loka fléttunni. Skáskurðir eru skornir í deigið um 1 cm frá farsinu með ca. 1,5 cm millibili út í enda á deiginu, síðan eru endarnir fléttaðir yfir fasið. Eggið þeytt og fléttan penslum með hrærunni, óreganó dreift yfir. Fléttunni er lyft á pappírnum og sett á bökunarplötu og bakað í ofninum í 40 mín., eða þar til deigið er gyllt og farsið bakað í gegn. Borið fram með tómatsósu, sýrðum rjóma og grænu salati.