Tandoori kjúklingasalat

Það sem til þarf er:

f.4

600 gr. kjúklingafile

100 gr. tandoori paste í krukku

1/2 tsk. tandoori krydd frá Pottagöldrum (má sleppa)

400 gr. hrein jógúrt

60 gr. myntusulta

1 poki laufsalat

4 stórir tómatar, grófsaxaðir

1 gúrka skorin í þykka grófa bita

1/2 rauðlaukur í þunnum sneiðum

Meðlæti:

12 pappdums

Mangó chutney

Ef þú leyfðir þér smá (:-D)eins og ég um helgina er þetta salat málið. Léttur kjúlli og fullt af góðu grænmeti. Ef þú ert ekki kunnug/ur pappadums, þá eru það næfurþunnar deigskífur sem eru annað hvort steiktar í smá olíu á pönnu eða eins og margir gera í dag að skutla þeim í örbylgjuna til að matreiða. Þær eru til í nokkrum bragðtegundum og eru frábærar með, stökkar eins og kartöfluflögur, namm namm

En svona geri ég:

Kjúklingur, tandoori paste, kryddi og helmingur af jógúrtinni hrært saman í skál, svo kjúklingurinn sé allur þakinn. Gott að láta standa í svollítinn tíma. Kjúklinalundirnar eru grillaðar á útigrilli eða steikar á grillpönnu. Grænmetinu og kjúklingnum raðað fallega á disk.4 pappadums skífur eru settar á disk í örbylgjunni og steikar á HIGH í um 30 sec. eða þar til þær púffast út. Já, ég sagði púffast :-) Endur tekið þar til allar eru steikar. Restinni af jógúrtinni er hrært saman með myntusultunni (er til frá, Den Gamle Fabric) og borin fram með salatinu ásamt Mangó chutney. Ef þú færð sultuna ekki er fínt að saxa ferska myntu útí og setja örlítinn sykur með.

Verði þér að góðu :-)

Gott fyrir þig og mig 🥙