Hrærð egg með reyktum laxi

Það sem til þarf er:

f. 2

2-3 egg

2 msk. rjómi

4 sneiðar reyktur lax, saxaðar

2-3 greinar dill, saxað

Salt og pipar

Það er svo dásamlegt að skríða upp í rúm á sunnudagsmorgnum með eitthvað rjúkandi heitt gúmmulaði á bakka og kaffibolla.... svo kósý :-) Þessi hrærðu egg verða oft fyrir valinu.

Svona ferðu að:

Eggin eru þeytt í skál með 1 msk. af rjóma, salti og pipar. Klípa af smjöri brædd á pönnu á meðalhita, eggjunum er hellt útí og þeim ýtt til og frá á pönnunni þangað til þau fara að eldast.  Þá er laxinum og dillinu bætt útá og haldið áfram að ýta öllu saman til þangað til þér finnast eggin næstum alveg elduð þá er 1 msk. af rjóma bætt útá og aðeins velt á pönnunni.  Passaðu að ofelda ekki eggin og laxinn.  Frábær morgunmatur, um helgar og daglega.

Verði þér að góðu :-)

.. líka á hverjum degi 😉