Cajun hörpuskel og guacamole

Það sem til þarf er:

24 stk.

24. stk. litlir kexbollar, eða stórar nachos flögur, eða mini toast

24. stk litlir hörpuskeljar

1 tks. ólífu olía

2 hvítlauksrif, marin

1 msk. Cajun krydd

sjávsrsalt og nýmalaður svartur pipar

1 1/2 bolli tilbúin guacamolue eða þín eigin uppskrift

2 msk. ferskur kóríander, saxaður

Eru við ekki alltaf að leita að einhverju fljótlegu, en góðu, til að narta í með fordrykknum þegar við eigum von á gestum. Ekki leita lengra, ég er með yndis uppskrift sem er hægt að klára á núll einni. Tilbúin guacamole og mini toast, Nachos flögur eða kexbollar sem þú kaupir út í búð, til að bera réttinn fram á, geggjað. Það eina sem þú þarft að gera er að steikja hörpuskelina og setja svo saman og bera fram áður en þú ferð í kjólinn og færð þér Prosecco glas áður en gestirnir koma. Let party beginne ;-)

Svona geri ég:

Í meðalstórri skál er hörpuskel, hvítlauk, ólívu olíu, cajun kryddi, salti og pipar, blandað vel saman. Steikt á pönnu þar til hörpuskelin er steikt, en endilega passaðu að of steikja hana ekki. Tekið af hitanum og látið kólna. Kexið eða að sem þú notar undir gert klárt. 1 kúfuð tsk. af guacamole er sett á það og sían er einni hörpuskel komið fyrir ofan á. Restin kláruð og sett á fallegan bakka eða fat. Söxuðun ferskum kóríander er svo dreift yfir.

Verði þér að góðu :-)

JummmÓ....🥗🥑😋