Puttanesca bollur

Það sem til þarf er:

f. 4

Bollur:

250 gr. nautahakk

250 gr. svínahakk

1 stór laukur, rifinn

50 gr. nýrifinn Parmesan ostur

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar

2 marin hvítlauksrif 

Puttanesca sósa:

2 msk. ólífu olía

2 hvitlauksrif í þunnum sneiðum

1/4-1/2 tsk. þurrkaðar chiliflögur

1/2 tsk. fennelfræ, létt marin

1 dós saxaðir tómatar

1 dós kirsuberja tómatar

1 dl rauðvín

1 tsk. sykur

1-2 ansjósuflök

10 svartar ólífur, skornar í tvennt

1 msk. kapers

Meðlæti:

400 gr. penne, fusilli eða rigatone pasta, soðið skv. leiðb. á pakka

Ég mæli með því að búa til tvöfalda uppskrift af þessum bollum.  Hér er á ferðinni einn af þessum réttum sem er svo gott að eiga til í frystinum, þegar tíminn er naumur, hann frystist vel og eina málið  er bara að sjóða pasta og maturinn er kominn á borðið, elska svoleiðis!

Svona geri ég:

Ofninn hitaður í 180°C.  Hakkið, rifinn laukurinn, parmesan osturinn og marði hvítlaukurinn er hnoðað saman í stórri skál, saltað vel og piprað.  Formað í litlar bollur.  1 msk. af olíu er hituð á rúmgóðri pönnu og bollurnar brúnaðar, síðan eru þær teknar af pönnunni. Ég set bollurnar í ofninn í smá stund á meðan ég bý til sósuna svo óþarfa fita leki af þeim og þær fullsteikist. 1 msk. af olíu er bætt á pönnuna og hvítlaukurinn i sneiðum er steiktur á lágum hita í smástund, þá er chiliflögunum, ansjósum og fennel fræunum bætt útí og mallað í smástund.  Næst er tómötum, rauðvíni og sykri bætt á pönnuna og látið malla í 10 mín., eða þar til sósan þykknar aðeins.  Bollunum er þá bætt á pönnuna ásamt ólífunum og kapers og mallað áfram i ca. 10 mín.,  smakkað og kryddað til.  Pastað er soðið skv. leiðb. á pakka. Borið fram með ferskum parmesan til að rífa yfir diskinn sinn og gott brauð ef þú vilt. 

Verði þér að góðu :-)

Ítölskt eðalmáltíð🫒