Plómusnittur
Það sem til þarf er:
F. 4
2 plötur af smjördeigi
Ca. 4 fjólubláar plómur
4 msk. sykur
1/2 tsk. kanill
3 msk. brætt smjör
Meðlæti:
Þeyttur rjómi eða góður ís
Þú ert í góðum málum ef þú átt nokkrar plötur af smjördeigi í frystinum. Þú ert enga stund að baka dásamlega ávaxtaköku, sem allir elska. Endilega prófaðu :-)
Svona geri ég:
Ofninn er hitaður í 200°C. Smjördeigið er afþýtt. Smjörpappír er sett ur á bökunarplötu. Hveiti er stráð á boðið og deigplöturnar eru flattar aðeins út og síðan skornar í tvennt, þversum. Sykri og kanil er blandað saman í litla skál. Deigferningunum er er raðað á bökunarplötuna og þeir smurðir með bræddu smjöri og drussað yfir með góðu lagi af kanilsykri. Plómurnar eru vegnar, þerraðar og skorna í 8 báta, hver. Þeim er raðar ofan á deigplöturnar, en skildu eftir 1 cm kant. Smjöri er smurt yfir plómurnar, síðan smá kanilsykri. Bakað í ofninum í um 20 mín., þar til deigið er gullinbrúnt og plómurnar mjúkar. Látnar standa á plötunni í um 5 mín., síðan settra á grind til að kólna. Bornar á borð með þeyttum rjóma eða góðum vanillu ís.