Croissant french toast

Það sem til þarf er:

F. 2-4

4 dagsgömul croissant, skorin langsum í tvennt

3 egg

1/2 dl matreiðslurjómi

1 tsk. sykur

1/2 tsk. kanell

1 tsk.  vanilludropar

Smjör til að steikja upp úr

Meðlæti:

Kalt smjör í bitum

Hlynsýróp

Jarðarber

Þeyttur rjómi

Þetta smakkast eins og desert í morgunmat, það er æði, sérstaklega á sunnudegi og  við ellllskum sunnudaga :-)

Og svona gerum við dásemdina:

Ofninnn er hitaður í 180°C. Það er betra að hafa croissantin dagsgömul, svo þau haldi sér betur þegar þau eru lögð í bleyti. Egg, rjóma, sykri og kyddi þeytt saman í skál. Croissantinum er sökkt, skorna hliðin fyrst, í eggjahræruna og þau látin drekka upp alla gómsætu bleytuna.  Smjörklípa er brædd á meðalstórri pönnu, á frekar lágum hita fyrst.  Croissantin lögð á skornu hliðinni á pönnuna og hitinn aðeins hækkaður  (ekki of mikið), og þau steikt í 3-4 mín. á hlið, stungið inn í ofninn til að halda þeim heitum á meðan þú klára að steikja restina.  Svo kemur skemmtilegi parturinn, þegar þau eru borin fram með nokkrum bitum af köldu smjöri, hlynsýrópi, skornum jarðarberjum og taktu eftir, þetta er nauðsynlegt... topp af þeyttum rjóma.  Svo er ekkert annað að gera en að halla sér útaf, með dagblöðin og sofna með þau á andlitinu, HAMINGJA.

Verði þér að góðu :-) 

Góðan daginn ❤️🍓