Kalkúlnafylling með heslisnetum og skinku
Það sem til þarf er:
Í fyllinguna:
150 gr. smjör
350 gr. nýir sveppir, sneiddir
200 gr. laukur, smátt saxaður
1 stilkur sellerí, smátt axað
1/2 búnt steinselja, söxuð
1 msk. salvia
300 gr.skinka, söxuð
100 g.r ristaðar heslinhnetur, muldar
150 gr. dagsgamalt brauð, í teningum
3 stór egg
2 dl rjómi
1/2 tsk. salt
1 tsk. pipar
Í soð:
Bein og innmatur úr kalkúninum
50 gr. smjör
1 gulrót, í bitum
1 laukur, grófsaxaður
1 sellerístilkur í bitum
1/2 L vatn
1 tsk. piparkorn
1 tsk. salt
Púrtvínssósa:
100 gr.smjör
60 gr. hveiti
4 dl kalkúnasoð
2 tsk. Dijon sinnep
2 dl púrtvín
2 dl rjómi
Salt og pipar
Skvetta af koníaki
Fyllingin og sósan eru uppskriftir úr gömlum Gestgjafa, sem við mamma, sem er úrvalskokkur, höfum notað um árabil og klikkar aldrei.
Svona geri ég:
Fyllingin:
Smjörið er brætt í stórum potti, sveppir, laukur, sellerí, salvia og steinselja er steikt með skinkunni í 10 mín. Þá er hnetunum og brauðinu bætt útí og látið kólna. Þá er eggjunum og rjómanum bætt við og kryddað með salti og pipar. Þetta má gera daginn áður og geyma í kæli.
Soð:
Innmaturinn er steikur í potti og látinn brúnast í smjörinu svo það komi gott bragð, síðan er restinni bætt við og soðið í potti í 1-1 1/2 tíma, sigtað. Má gera daginn áður.
Sósa:
Smjörið er brætt í potti og hveitið safnað útí með kalkúnasoðinu. Þá er sinnepi bætt við, púrtvíni og rjóma, saltað og piprað. Að síðustu er smakkað til með slettu afkoníaki og steikarsoði af fuglinum.