180 gr. bacon, saxað
1 lítill laukur, smátt saxaður
2 lítil jalapenos chili, fræhreinsuð og smátt söxuð
6 hvítlauksrif, smátt söxuð
320 gr. tómatsósa
100 gr. dökkurmelassi
50 gr. dökkurpúðursykur
4 msk. Worchestershire sósa
2 msk. gult amerískt sinnep
2 msk. Hot sauce
1 msk. eplaedik
1 msk. chili duft
1 tsk. nýmalaður svartu pipar
2x425 gr. dósir cannellini baunir, með vökvanum
2x425 gr. dósir cannellini baunir, skolaðar
2-4 dl vatn
Grilltíminn er kominn, með sólskinin og dásamlega útigrillaða matnum sem fylgir honum. Gott meðlæti gerir góðan mat enn betri og bragðgóð viðbót við vopnabúrið manns, er alltaf vel þegin. Hér eru á ferðinni heimagerðar bakaðar BBQ baunir, ekki eins og Heinz, heldur miklu miklu betri. Þær eru einfaldar að búa til, hanga mestan tímann í pottinum í ofninum, á meðan þú gerir annað á meðan, sláðu til og búðu til skammta f þessum frábæru baunum.
Ofninn er hitaður í 175°C. Saxað baconið er sett í pott sem má fara í ofninn og steikt á meðalhita þar til fitan er bráðin og baconið orðið gyllt, ca. 10-15 mín. Þá er lauknum bætt á pönnuna ásamt jalapenos og hvítlauknum. Steikt í baconfitunni og skánin sem sest á botninn skafin upp í laukblönduna, ca. 10 mín. Þá er tómatsósu, melassa, sykri, sinnepi, Hot sauce, ediki, chili dufti og pipar bætt út í og blandað vel saman. Baununum er hrært út í, ásamt 2 dl af vatni. Blandað vel saman og hitað að suðu. Lokið sett á pottinn g honum stungið í ofninn og baunirnar bakaðar í 1 1/2 tíma, hrært í 2-3 á suðutímanum og meira vatni bætt út í ef þér finnst þær vera of þurrar. Baunirnar eru til búnað þegar, sósan hefur þykknað en samt svolítið blautar. Bornar fram með góðum grillmat, eða sem hluta af Full English Breakfast.