Blómkálssúpa með rauðu karrý

Það sem til þarf er:

f. 4

1 stór blómkálshaus, brotinn í lítil blóm og stilkurinn saxaður

1/4 bolli hituð kókosolía eða ólífu olía

1 laukur, saxaður

2-3 mak. rautt Thai karrýmauk (fer eftir hvað þú vilt sterkt)

Börkur á 1 lífrænni sítrónu, fínrifinn

1/2 boli af hvítvíni (Pinot Grigio), má sleppa

1 1/2 boli grænmetis-eða kjúklingasoð, (vatn+þykkni)

1 dós létt kókosmjólk

1/2 tsk. sykur

1 msk. japanskt hrísgrjónadeik

Sjávarsalt og svartur pipar

1/4 bolli saxaður volaukur

1 msk,. ferskt saxað basil

Þunnar sneiðar af rauðu chili

Meðlæti:

Gróft brauð með skorpu og ólífu olía til að dýfa því í

Ég elska blómkál, tala nú ekki um góða blómkálssúpu.  Í þessari súpu er blómkálið ristað í ofninum í kókosolíu og súpan krydduð með rauðu karrý. Matarmikil og góð súpa sem er ekki með rjóma, en jafn silkimjúk. 

Svona geri ég:

Ofninnn er hitaður í 200°C.  Blómkálinu er velt uppúr ca. 3 msk. af kókosolíunni og sett í einu lagi á bökunarplötu og bakað þangað til kálið er gyllt, ca. 25-30 mín.  1 msk. af kókosoliu er hituð í rúmgóðum potti og laukurinn steiktur með smá salti þar til hann er mjúkur og glær.  Þá er karrýmaukinu og sítrónuberkinum bætt útí, hitinn er hækkaður og víninu (ef það er notað) bætt útí og hrært í þar til það er að mestu gufað upp. Mestu af blómkálinu er þá bætt útí pottinn, ásamt soði, kókosmjólk og sykri.  Suðan  er látin koma upp og hrært í á meðan, síðan tekið af hitanum og edikinu bætt útí. Þá er "Töfrasprotinn" tekinn fam og honum stungið ofaní pottinn og súpan maukuð þar til hún er silimjúk og slétt (FARA VARKEGA, HEITT).  Smakkað til með salti og pipar.  Súpunni er skipt í 4 skálar og restinni af blómkálinu, basil og vorlauk hrúgað fallega í miðjuna á hverri skál.  Svo er gott að hafa skorpu-mikið gróft brauð og olíu með.

Verði þér að góðu :-)

     Holl og fer vel í okkur 🍲