Humarkokteill og spicy sósa
Það sem til þarf er:
F. 4
Sósan:
200 gr. majónes
2 msk. tómasósa
1-2 tsk. Sambal oelec
Lime safi
Humarinn:
300 gr. skelflettur humar
Sjávarsalt
1/2 sóló hvítlaukur
2 lárviðarlauf
1 sítrónubátur
5 piparkorn
Samsetning:
3 hausar vetrarsalat, Little Gems, laufin tekin í sundur
1 avocado, skorð í litla bita
Nokkrir kirsuberja tómatar
Ferskar dillgreinar
Sítrónubátar
Meðlæti:
Grillað eða ristað snittubrauð og smjör
Hér er á ferðinni fallegur og hátíðlegur forréttur, með skemmtilegri og spicy sósu. Það er mjög auðvelt að búa þennan rétt til og auðvelt að hafa hann kláran fyrir fram. Ég ber hann á borð með grilluðu snittubrauði, sem ég rista á gasloganum og köldu hvítvíni eða kampavíni.
Svona geri ég:
Sósan: Allt í sósuna er sett í miðlungstóra skál og hrært vel saman. Stungið í ísskápinn þar til á að nota hana.
Humarinn: Hvítlaukurinn, piparkornin, lárviðarlaufin og sítrónubáturinn eru sett í pott með 5 cm, af söltu vatni. Suðan er látin koma upp og humrinum stungið í vatnið og suðan látin koma upp aftur og humarinn soðinn í 1 mín., þá er hann tekinn upp úr suðuvatninu með gataspaða og látinn kólna. Geymdur í kæli þar til á að nota hann.
Samsetningin: Salatið er skolað, þerrað vel og dreift á milli skálanna sem á að bera fram í. Avocadoið er skorið í litla bita og sítróna kreist yfir það, síðan er humrinum jafnað á milli skála, ásamt kisuberjatómötum, sem er búið að skera í 4 hluta. Smávegis af sósu er drussað fallega yfir og sítrónubát stungið ofan í. Snittubrauðið er ristað yfir gasloga eða ristað og borið fram með humrinum með smjöri og restinni af sósunni.