f. 4
600 gr. kjúklingafile
100 gr. tandoori paste í krukku
1/2 tsk. tandoori krydd frá Pottagöldrum (má sleppa)
400 gr. hrein jógúrt
60 gr. myntusósa, ef hun er ekki til er ferk söxuð mynta góð í staðinn
1 poki laufsalat
4 stórir tómatar, grófsaxaðir
1 gúrka skorin í þykka grófa bita
1/2 rauðlaukur í þunnum sneiðum
12 pappdums
Mangó chutney
Ef þú leyfðir þér smá (:-D) eins og ég um helgina, er þetta salat málið. Léttur kjúlli og fullt af góðu grænmeti. Ef þú ert ekki kunnug/ur pappadums, þá eru það næfurþunnar deigskífur sem eru annaðhvort steiktar í smá olíu á pönnu eða eins og margir gera í dag að skutla þeim í örbylgjuna. Þær eru til í nokkrum bragðtegundum og eru frábærar með, stökkar eins og kartöfluflögur, namm namm :-)
Kjúklingur, tandoori paste, kryddi og helmingur af jógúrtinni hrært saman í skál kjúklingnum bætt útí og passa að hann sé allur þakinn í kryddleginum. Gott að láta standa í svollítinn tíma. Kjúklinalundirnar eru grillaðar á útigrilli eða steikar á grillpönnu. Grænmetinu og kjúklingnum raðað fallega á disk. 4 pappadums skífur eru settar á disk í örbylgjunni og steikar á HIGH í um 30 sec. eða þar til þær púffast út. Endurtekið þar til allar eru steikar. Restinni af jógúrtinni er hrært saman með myntusósunni (er til frá, Den Gamle Fabric) og borin fram með salatinu ásamt Mangó chutney. Ef þú færð hana ekki er fínt að saxa ferska myntu útí og setja örlítinn sykur með.