Andabringur með asískri bláberjasósu

Það sem til þarf er:

f. 4

2-3 andabringur

Ólífu olía

Sjávarsaltflögur

Í sósuna:

3x125 gr. öskjur  bláber

1 meðalstór laukur, fínsaxaður

1/4 bolli kjúklingasoð

1/3 bolli púðursykur

2 msk. hvítvínsedik

2 hvítlauksrif, grófsöxuð

1 stjörnuanís

1 þurrkað rautt chili

1/2 kanelstöng

1 tsk. piparkorn

3 negulnaglar

Helgarsteikin þessa helgina eru andabringur með asískt kyddaðri bláberjasósu, yndislegur matur og fljóteldaður.  Ef þú átt bláber í frystinum frá því í haust, er frábært að nota þau, eða þá bara að skjótast í búiðna og næla sér í nokkur ber  ;-)

Svona gerði ég:

Ofninn er hitaður í 180°CAllt efni í sósuna sett í pott og látið malla í 10 mín., hrært í við og við. Sósan er síðan pressuð í gegnum sigti og stóra kryddinu og hratinu hent.  Bringurnar eru þerraðar vel og tíglar skornir ofan í húðina með beittum hníf, olíu og salti er nuddað vel ofan í þær. Bringurnr eru steiktar á meðalhita í 7-10 mín., með húðina niður.  Þá er fitunni hellt af pönnunni (ekki henda fitunni, frábært að eiga til að steikja kartöflur uppúr) og bringurnar steiktar í  nokkrar mínútur á hinni hliðinni.  Stungið í ofninn í um 8-10 mín.  Bringurnar eru teknar úr ofninum og látnar hvílast í nokkrar mín.  Skáskornar í nokkrar sneiðar og bornar fram með sósunni.

Mér finnst gott:   Að heilsteikja vorlauk á snarpheitri grillpönnu og bera fram með ásamt soðnum heilhveitinúðlum með grænmeti sem er velt uppúr smá slurk af ostrusósu, soju og sesamolíu.

Verð þér að góðu :-)

        Elska önd 🦆🤗