B '21

Það sem til þarf er:

Í 10 stk.

Í bollur:

1.25 ml vatn

50 gr. smjör

Salt milli fingra

20 gr. sykur

75 gr. hveiti

2 egg

Í craquelin:

50 gr. hrásykur

50 gr. hveiti

45 gr. smjör

Grænn matarlitur, 1-2 dropar

Fylling:

3.5 dl rjómi, þeyttur

1 msk. flórsykur

1/2 tsk.  vanilludropar

Hindberjasulta

1-2 pokar Mini eggs frá Cadbury

1 box fersk hindber

Þá byrjar ballið, Bolludagur er um helgina!!!!!  Hugmyndaflugið fer á flug og hálf ærist við að hugsa upp nýjar fyllingar og  eitthvað spennandi til að bjóða uppá, á daginn sjálfan.  Craquelin er nýja æðið mitt, en það er ættað frá Frakklandi.  Það er massi sem er búinn til úr hrásykri, hveiti og smjöri og verður eins og stökkt sykurhraun ofan á mjúkri bollunni, þegar hún bakast, þú skilur hvert ég er að fara 😊 Bollan sjálf er svo gómsæt, með stökku sykurlokinu, að það þarf ekki flókna fyllingu til að búa til geggjaða samsetningu, leyfa bollunni sjálfri að njóta sín.   Ég er mikil ávaxta og berja manneskja, frekar en súkkulaði, ef ég verð að velja....,  þess vegna vel ég yfirleitt fersk ber, góða sultu og brytjað súkkulaði, frekar en bráðið.  Þessi bollu uppskrift er skotheld ef þú ferð eftir leiðbeiningum, og að búa til sykurhraunið, er minna en ekkert mál.  Þessi útgáfa, er bollan mín í ár, njóttu vel 🥰

Svona geri ég:

Craquelin:  Ofninn er hitaður i 180°C.  Bökunarplata með pappír er gerð klár.  Það er gott  að byrja á að gera sykurhraunið.  Hrásykurinn, matarliturinn og smjörið er nuddað saman í skál með sleikju, síðan er hveitinu bætt útí svo úr verði mjúkur massi.  Ein örk af bökunarpappír er sett á eldhúsborðið og massinn settur ofan á, önnur örk er svo sett ofan á massann og hann flattur út aðeins þykkari en krónupeningur.  Hringur eða kökuskeri ca. 3 cm í þvermál er notaður til að skera út 10 hringi, ekki losa þá í sundur.  Pappírinn er lagður aftur ofan á aftur og massinn geymdur í ísskáp þar til bolludeigið er tilbúið.  

Bollur:  Í meðalstórum potti er vatnið, smjör, sykur og salt, brætt og látið sjóða í 1-2 mín.  Potturinn er tekinn af hitanum og hveitinu er hrært saman við vatnið, gott að gera það með sleikju.  Þegar deigið er orðið samfellt er potturinn settur aftur á vægan hita og hrært í deiginu á meðan mesti rakinn gufar upp af því, 1-2 mín., gott viðmið er að þá fer að koma smá skán í botninn á pottinum.  Deigið er sett í hrærivélina með spaðanum á og það er þeytt svo mesti hitinn gufi upp, einu eggi er þeytt vel út í og deigið látið samlagast vel, svo er hinu egginu þeytt saman við.  Þeytt í svolítinn tíma, en þá er gott að stoppa í smá stund og skafa niður með hliðunum á skálinni og þeyta svo í smástund aftur.  Deigið er sett í sprautupoka með víðum sléttum stút.  Sprautað á plötuna með jöfnu millibili (ca. mandarínustærð).  Fingur er vættur í vatni og totan á bollunni slétt niður.   Þá er komið að craquelin-inu, einn hringur af því er lagður ofan á hverja bollu.  Plötunni er stungið í ofninn og bakað í 30-35 mín.  ATH. ALLS EKKI OPNA OFNINN FYRSTU 30 MÍN.   Eftir 30 mín. má kíkja á bollurnar, ef þær eru ekki orðnar nokkuð gylltar og stökkar að utan þurfa þær að vera í 2-4 mín. í viðbót.  Helstu mistökin sem ég hef gert er að opna ofninn of snemma og of lengi, eða að þær eru of ljósar þegar ég tek þær úr ofninum og eru þess vegna ekki nóg bakaðar og þurrar til að halda sér uppi.  Þegar þú er viss um að þær séu fullkomnar eru þær teknar úr ofninum og settar á grind og  kældar.

Fyllingin:  Rjóminn er þeyttur með flórsykrinum og vanilludropunum, settur í sprautupoka með stjórnustút og súkkulaðieggin eru söxuð miðlungs fínt.  Bollurnar eru klofnað í tvennt og botninn smurður með hindberjasultu, súkkulaðieggjum er dreift ofan á, hindberjum raðað þar ofan á og í lokin er rjómanum sprautað í toppa ofan á og á milli berjanna.  Síðast en alls ekki síst, er fallega craquelin lokið sett ofan á. 

Verði þér að góðu :-)

Bollur og craquelin

Fyllingin

Sjúklega góð 👌