Súkkulaði Martíní

Það sem til þarf er:

f. 2

4 dl mjólk

2 kúfaðar msk. af Nutella

1 kúfuð msk. af góðu kakó (Green&Black)

3 skot af Vodak

2 skot af súkkulaðilíkjör frá Bols

Klaki

Til að skreyta glösin:

Nutella

Ristaðar heslihnetur, saxaðar

Konudagurinn er á sunnudaginn! 

Ég er á þeirri skoðun að það ætti að helga konum alla helgina!!  Frá lokum vinnudags á föstudegi til upphafs vinnu á mánudegi...  Konuhelgin, hvað finnst þér?  Getum við sett nýtt trend í gang???  Hvernig sem fer með það byrjum við helgina á Súkkulaði Martíni :D

Svona gerum við:

1-2 msk. af Nutella er smurt á lítinn disk og söxuðum heslihnetum dreyft á annan.  Brúninni á Martíníglösunum er snúið ofaní Nutellað og svo er þeim dýft í hneturnar.  Mjólkin, Nutella og kakó er hitað varlega í potti, hrært í þar til blandan er flauelsmjúk og heit.  Sett í kæli og kælt.  Þegar súkkulaði-mjólkin er alveg köld er kokteilhristarinn tekinn fram súkkulaðimjólkinni og áfenginu skutlað i hann ásamt klaka, svo er hrist duglega, hellt í   glösin og svo að njóta þess að það er komin helgi.  

SKÁL FYRIR KONUM :-)

GLEÐILEGAN KONUDAG 💖