Churros með Nutella dip

Það sem til þarf er:

F. 4-6

250 gr. hveiti

1 tsk. lyftiduft

60 gr. smjör

4.5 dl sjóðandi vatn

Sólblómaolía, til að steikja uppúr

Nutella dip:

100 gr. suðu súkkulaði

2 msk. síróp (ekki hlynsíróp)

100 gr. smjör

100 ml. Mascarpone, við stofuhita

Ég er hoppandi af spenningi, þetta er svo geggjað gott!! Ég hreinlega elska churros með góðri súkkulaði/karamellu dýfu, en svo elska ég Nutella líka og hér kemur það sterkt inn á sviðið. Það er fínt að búa til dýfuna áður en þú steikir churro-ið, þá gengur allt vel upp. Endilega dekraðu við þig og fáðu þér churros með Nutella dip :-)

Svona geri ég:

Nutella dip: Súkkulaði, síróp og smjör er brætt yfir vatnsbaði þar til það er bráðið, tekið af hitanum. Síðan er Mascarpone og Nutella þeytt út í volgt súkkulaðið með stórum písk, þar til dýfan er kekkjalaust og glansandi. Geymt það til á að nota hana með því að setja plastfilmu beint ofan á súkkulaðið. ATH. Ef sósan er orðin köld, er upplagt að hita hana upp, með því að setja heitt vatn í vaksinn og stinga skálinni í og þeyta hana og hita þannig upp.

Churros: Hveiti og lyftiduft er sigtað saman i stóra hrærivélaskál. Bráðnaða smjörinu er blandað saman við heita vatnið og síðan er því þeytt saman við hveitið, þar til það verður að þykkum massa. Þá er plast sett yfir deigið og það sett í kæli í 30 mín. Stór pottur er hálffylltur með olíu, sem er látin hitna í 180-200°C. Churros deigið er sett í sprautupoka með nokkuð stórum stút á, hafðu hrein skæri tilbúin. Þegar olían er tilbúin er ca.10 cm. lengjur af deigi klipptar út í heitu olíuna, passaðu þig að brenna þig ekki, ca. 3 í einu og steiktar í 3-4 mín., þar til þeir eru gylltir og stökkir. Teknir upp úr olíunni með gata spaða og sykri stráð yfir þá. Bornir heitir á borð með Nutella dýfunni.

Verði þér að góðu :-)

Nutella dip

Churros

Geggjað gott 😍🙌🏻