Bakaðir andaleggir með sætkartöflumús

Það sem til þarf er:

F. 6

6 andaleggir

12 skarlottulaukar, miðlungs stórir, í heilu lagi

2 lárviðarlauf

1/2 tsk. ný marin allrahanda ber (allspice), eru til frá Kryddhúsinu, eða tilbúin möluð

1/2 tsk. sjávarsalt

3 dl hvítvín

Í sætkartöflumúsina:

1 kg. sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita

Stór klípa smjör

Fersk múskathneta, rifin 

Sjávarsalt

Söxuð steinselja, til skrauts

Andaleggir eru nýja uppáhaldið mitt þessa dagna.  Loksins er alltaf hægt að fá þá, í flestum verslunum og þeir eru ekki dýrir.  Þetta er mjög einföld uppskrift, en gefur engan afslátt af bragði og gæðum.  Það er mjög einfalt að minnka uppskriftina eða stækka.  Tilvalinn helgarmatur, endilega prófaðu!

Svona geri ég:

Andaleggirnir:  Ofninn er hitaður í 190°C.  Skarlottulaukarnir eru skrældir, en hafir heilir.  Húðin á andaleggjunum er pikkuð með gaffli.  Allrahanda kryddið er marið í mortéli og blandað saman við sjávarsaltið.  Leggirnir eru nuddaðir vel með kryddinu og lagðir í einfalt lag í ofnskúffu, lauknum og lárviðarlaufinu er stungið inn á milli.  Síðan er skúffunni stungið i ofninn og leggirnir bakaðir í 1 klst.  Þá er skúffan tekin úr ofninum og mesta af fitunni fjarlægð úr skúffunni með stórri skeið og sett í skál og geymt, ef þú vilt nota hana seinna.  Hvítvíninu er hellt í skúffuna og henni stungið i ofninn aftur og bakað áfram í 20 mín., borin á borð með lauknum og sætkartöflumúsinni.

Sætkartöflumúsin:  Sætu kartöflurnar eru skrældar og skornar í bita.  Suðan  er látin koma upp á söltu vatni í rúmgóðum potti.  Kartöflurnar eru soðnar  þar til þær eru meyrar, ca. 7-10 mín.  Kartöflunum er hellt í sigti þegar þær eru soðnar og vatnið látið renna vel af þeim.  Settar aftur í pottinn, ásamt stórri klípu af smjöri (ekki spara það) og maukaðar með töfrasprota.  Smakkaðar til með sjávaralti og góðum slatta af ný rifinni múskathnetu.  

Verði þér að góðu :-)

Andaleggirnir

Sætkartöflumúsin

Elegant og einfalt 🧡