Hægelduð nauta stuttrif með steinseju-og gulrótarmauki

Það sem til þarf er:

F. 4

2 kg. nauta stuttrif, skorin í sundur á milli beinanna

1 1/2 tsk. gróft sjávarsalt

1 1/4 tsk. nýmalaður svartur pipar

1 meðalstór gulrót, í stórum bitum

1 meðalstór steinseljurót, í stórum bitum

1 1/2 msk. hveiti

1 msk. olía til að steikja úr

1 msk. tómatmauk

1 1/2 msk. kínverskt five spice krydd

1 flaska þurrt rauðvín

1 L gott nautasoð (broth), fæst í fernum t.d.  í  Krónunni

1 lítill laukur skorinn í geira

5 sóló hvítlaukar skornir í tvennt

1/4  bolli kóríanderlauf, geyma stilkana

2 lárviðarlauf

Steinselju- og gurótarmauk

3 meðalstórar gulrætur, skrældar og skornar í meðalstóra bita

3 meðalstórar steinseljurætur, skrældar og skornar í meðalstóra bit

1/4 bolli rjómi

1/4 bolli mjólk

1 tsk. salt  (bæði til að setja í suðuvatnið og krydda með)

2 msk. smjör  

1/2 tsk. ný rifin múskathneta


Haustið er fallegur tími og litirnir sem náttúran sýnir okkur eru dásamlegir, rafgulir, koparbrúnir og dökkrauðir.  Með þeim kemur uppskerutíminn og allt sem þú settir í jörðina í vor, rétt eftir að frostið gaf sig og sólin sendi þér fyrsta ylinn, er fullþroskað og tilbúið.  Hvort sem er til að njóta núna strax eða undirbúa og eiga, eins og smáskammt af sumri í krukku, þegar veturinn æðir úti.  Haustið er líka tíminn fyrir kertaljós og hægeldaðan mat.  Dásamlegar súpur fullar af næringu og hita eða góður biti af kjöti sem hefur mallað í krydduðu soði daglangt og hreinlega rennur af beinunum.  Ilmurinn af honum fyllir þig svo mikilli tilhlökkun að hún er að æra þig, loksins þegar þú sest að borðinu og færð að smakka.  Við sýnum auðvitað náttúrunni virðingu og sóum engu af því sem við fáum frá henni og nýtum allt, líka ódýru skrýtnu bitana af kjöti sem við vitum ekki alltaf hvað við eigum að gera við.  Þessir bitar henta mjög oft vel í hægeldun, eins og t.d. nauta stuttrif, sem eru einmitt tilvalin til þess.  Það er hægt að panta þau í góðum kjötbúðum. Þú getur pantað þau í góðum kjötbúðum, eins og Melabúðinni eða Kjöthöllinni í Skipholti.

En í eldhúsið:

Ofninn er hitaður í 180°C.  Rifin eru skorin eftir endilöngu á milli beinanna. Þau eru söltuð og pipruð og lögð til hliðar í 30 mín.  Rifunum er velt upp úr hveiti og þau ristuð á stórri djúpri pönnu upp úr olíunni, á öllum hliðum.  Það þarf kannski að gera þetta í tvennu lagi, svo pannan haldist nógu heit allan tímann. Sett til hliðar á disk.  Tómatmaukið og five spice kryddið er sett á pönnuna og steikt þar til það fer að ilma ca. 1 mín., þá er rauðvíninu hellt útá pönnuna og látið malla í 10 mín.  Síðan er gulrót, steinseljurót, lauk, hvítlauk, kóríander stilkum, lárviðarlaufum og soði bætt á pönnuna.  Rifunum er komið vel fyrir í soðinu og lok sett á.  Stungið í ofninn og látið malla með loki í 2 klst.  Þá er lokið tekið af og látið malla áfram í ofninum í 1 klst. til viðbótar, eða þar til kjötið nánast rennur af beinunum.  Rifin eru tekin upp úr og haldið heitum.  Soðinu og grænmetinu er hellt í pott með og soðið niður í um 10 mín., þá er sósan maukuð með töfrasprota og borin fram með rifjunum og rótarmaukinu.

Steinselju- og gulrótarmauk:

Steinselju- og gulræturnar eru skrældar og soðnar í söltu vatni í um 15-20 mín.  Vatninu er hellt af þeim og þær settar aftur í pottinn.  Mjólk, rjóma, smjöri og kryddi er bætt í pottinn, og maukað slétt og flauelsmjúkt með töfrasprota eða sett í matvinnsluvél, smakkað til.  Sett í skál og kóríanderlaufunum dreift yfir.  Njótið með góðu rauðvíni í góðra vina hóp.

Verði þér að góðu :-)

Tryllt 🤩