Klassísk bolla

Það sem til þarf er:

25-30 stk.

100 gr. smjör

2 1/2 dl vatn

100 gr. hveiti

3 egg (ekki stór)

Salt

Fylling og glassúr:

Rjómi, þeyttur

1/2 plata suðusúkkulaði

1 tsk. smjör

Þetta er gamalreynd uppskrift frá mömmu sem er snillingur að baka.  Ég hef hingað til komið mér undan því að baka bollur, en fannst tímabært að takast á við þær núna, ekkert múður meira.  Þær heppnuðust svona líka vel, þannig að ég kvíði ekki næsta bolludegi 

En svona gerir mamma:

Ofninn er hitaður í 200°C (180°C á blæstri).  Vatn og smjör er hitað að suðu.  Hveitinu er svo hrært útí með sleif þar til deigið er laust frá hliðunum á pottinum, þá er smá salti stráð yfir og degið látið kólna aðeins.  Síðan er eggjunum hrært útí með rafmagnsþeytara, einu í einu, þeytt vel á milli.  Deigið má ekki vera of lint, getur þurft að bæta smá hveiti í til að það standi þokkalega vel.  Bökunarpappír er settur á plötu og deigið sett með tveim teskeiðum á plötuna með góðu bili á milli.  Bollurnar eru bakaðar í miðjum ofninum í 25-30 mín.  Það er mikilvægt að OPNA EKKI OFNINN fyrstu 20 mín. Kældar og fylltar eftir þínum smekk. Ef þú vilt fá gljáa á bollurnar er gott að pensla þær með þeyttu eggi.  Ég fyllti mínar með heimagerðri, rjóma, Jarðarberjsulta og súkkulaði ofaná (suðusúkkulaði ca. 1/2 plata og 1 tsk. smjör brætt yfir vatnsbaði, og svo smurt á bollurnar), líka með flórsykri ferskum jarðarberjum og sultunni góðu.  Ég gerði líka bollur með Hindberjarjóma uppskriftin af þeim er á síðunni.  Svo er um að gera að hafa gaman af þessu og vera frumlegur í vali á fyllingum, endalausir möguleikar.

Verði þér að góðu  :-)

Bollur með hindberjarjóma

      Klassík 🥰