Aspas brúsketta

Það sem til þarf er:

1/2 búnt ferskur aspas, skáskorinn í 2 cm sneiðar

1/4 rauðlaukur, fíntsaxaður

1/2 box kirsuberjatómatar, skornir í 4 hluta

Salt og pipar

Rautt pestó

Ferskur parmesan, rifinn

Snittubrauð

Olía til að steikja úr

Það er nauðsynlegt að eiga eitthvað gott að narta í þegar maður kemur þreyttur heim í lok langrar og oft strangrar vinnuviku. Þessi brúsketta er einföld og frábærlega góð.  Ég fékk þessa uppskrift hjá Ingu dóttur minni sem býr í Ásrósum.  Hún hefur oft gert þessa brúskettu þegar hún hefur verið hér heima, og alltaf gert stomandi lukku, svo ég plataði hana til að gefa mér uppskriftina. Góða helgi allir.

Svona geri ég:  

Ofninn er hitaður í 200° C og pappír settur á bökunarplötu.  Brauðið er skáskorið í sneiðar og þær smurðar með pestóinu.  Aspasinn og laukurinn er ristað í olíu á snarpheitri pönnu í stuttan tíma og síðan er tómötunum bætt út á í restina og þeir hitaðir án þess að elda þá, saltað og piprað. Grænmetinu er skipt á milli brauðsneiðanna og Parmesan ostur rifinn yfir.  Bakað í ofninfum þar til osturinn er bráðinn og brauðið gyllt á litinn.

Verði þér að góðu :-)

Svo nice 🍅🧀