Lemon tart

Það sem til þarf er:

f. 8

Í botninn:

185 gr. hveiti

55 gr. flórsykur

30 gr. möndlumjöl

125 gr. kalt smjör í bitum

1 eggjarauða

Í fyllinguna:

1 msk. fínrifinnn sítrónubörkur

1.2 dl  nýkreistur sítrónusafi

 5 egg

165 gr.  sykur

 3 dl rjómi

Hún er sólgul og fögur.  Skelin er með mildu möndlu/smjör bragði sem molnar fínlega í munninum og fyllingin er mátulega súrsæt, allt í jafnvægi.  Ég elska allar kökur og bökur þar sem sítrónur eru í lykilhlutverki.  Þú verður ekki vonsvikin með þessa.

Svona geri ég:

Allt hráefni í botninnn er sett í matvinnsluvél og þeytt þar til allt er samlagað.  Þá er deigið sett á hveitistráð borð og hnoðað þar til það er slétt og fellt.  Sett í plast og kælt í 30 mín.  Ofninn er hitaður í 200°C24 cm lausbotna bökuform er smurt að innan.  Deiginu er rúllað út á milli 2ja laga af smjörpappír, þar til það er nógu stórt til að klæða formið að innan.  Deigið er sett varlega í formið og brúnirnar smyrtar til, kælt í 30 mín. Bökunarpappír er settur inní formið og ósoðin hrísgrjón eða keramik bökunarbaunir settar ofaná pappírinn (sem farg, svo komi ekki loftbólur í botninn) og bakað í 10 mín., þá er fargið tekið af og pappírinn líka og bakað áfram í ca. 10 mín., þar til skelin er gyllt. Hitinn á ofninum er lækkaður í 160°C og skelin er kæld þar til hún er alveg köld. Öllu hráefni í fyllinguna er hrært saman í skál og látið standa í 5 mín., þá er það síað. Fyllingunni er hellt í skelina og hún bökuð í ca. 40 mín., þar til hún er rétt sest til í miðjunni.  Látin standa í forminu í 10 mín.  Svo er hún losuð varlega úr forminu á kökudisk og kæld í  ísskáp þar til hun er alveg köld.  Það er smekksatriðið hvort þú berð tartið á boðr með þeyttum rjóma eða ekki.  Ég sleppi rjómanum á minn disk, finnst best að njóta hennar eins og hún er, fersk.

Verði þér að góðu :-)

Sólgul, fögur og í fullkomnu jafnvægi 🌞