Parmaskinku- og pesto gratíneruð langa

Það sem til þarf er:

f. 4

ca. 800 gr. langa

Salt, pipar og smá druss af Perfect Pinch, Cajun (frá McCormick)

2 pakkar parmaskinka

1 dós 18% sýrður rjómi

3 msk. gott ferskt pesto

25 gr. fín rifinn parmesanostur

1 msk. furuhnetur

Meðlæti:

Gott skorpumikið brauð, til að moppa sósunni upp af disknum

Salat að þínum smekk

Góður fiskur sem tekur 5 mín. að koma í ofninn, hljómar eins og hörpusláttur af himnum, þegar kemur að því að gefa familíunnu góðan kvöldmat. Sósan er svo góð, að ég hef bara skorpumikið brauð til að moppa henni upp af disknum með, gott salat skemmir ekki.

Svona geri ég:

Ofninn hitaður í 200°C. Fiskurinn er skorinn í fallega bita (ekki of smáa), og kryddaður á báðum hliðum. Skinkusneið er lögð á borðið og henni er rúllað utan um hvern bita. Bitunum raðað í stórt eldfast fat og doppum af sýrðum rjóma og pesto dreyft á milli bitanna og í kring. Ostinum er dreyft ofaná ásamt furuhnetunu og bakað í 15-20 mín. þar til skinkan tekur á sig gylltan lit og fiskurinn er gegnsteiktur. Borið fram með nóg af góðu skorpumiklu brauði og salati ef þú vilt.

Verði þér að góðu :-)

P.s. Ég læt fylgja með uppskriftina af uppáhalds pestóinu mínu

Dásamleg langa 🙌🏻