f. 4-5
1 stk. Philadelphia rjómaostur, við stofuhita
1 krukka tómat salsa, miðslungs sterk
2 vel þroskaðir tómatar, þvegnir, kjarnhreinsaðir og saxasðir í miðlungs stóra bita
1/2 appelsínugl paprika, smátt söxuð
1 lítill púrrulaukur, ljósgræni og hvíti hlutinn, þveginn og saxaður smátt
1 lítill klasi vínber, smátt söxuð
Rifinn ostur
Nachos
Ég fæ bara vatn í munninn, þegar ég hugsa um þessa dásamlegu ídýfu. Það var góð vinkona sem bauð mér og fleirum upp á hana fyrir nokkru. Ég plataði hana um uppskrftina fyrir okkur og þar sem dýfan heitir ekkert, nefndi ég hana í höfuðið á vinkonunni, henni Önnu Siggu. Dýfan er svakalega einföld og geggjuð í munni, ég lofa því, að það eina sem verður eftir þegar þú býður upp á hana, er galtómur diskur. Passar í hvaða partý sem er, líka frábær, sem guilty pleasure fyrir einn, endilga prófaðu ;-) Takk elskuleg fyrir uppskriftina ❤️
Þú þarft nokkuð stórt flatt fat eða disk fyrir dýfuna. Rjómaostinum er smurt yfir miðjuna á fatinu, með bakinu á skeið, en ca. 10 cm. kantur er skilinn eftir, fyrir nachosið í lokin. Salsanu er smurt yfir rjómaostinn, síðan er saxsaðir púrrunni dreift yfir, ostinum, tómötunum, vínberjunum og síðast paprikunni. Svona getur dýfan beðið í ísskáp í 1-2 tíma með plasti yfir. Þegar þú ætlar að bera hana á borð, er nachos flögum raðað á kantinn sem var skilinn eftir, borin á borð og notið með uppáhaldas drykknum þínum.