F. 4-5
1 msk. ólívu olía
1 laukur, saxaður
1/4 bolli sellerí, saxað
3 litlar gulrætur, í sneiðum
3 hvítlauksrif, pressuð
3 msk. Heinz chili tómatsósa
1 tsk. reykt paprika
1/4 tsk. cayanne pipar
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
1/4 bolli hveiti
4 bollar kjúklingasoð
1/4 bolli vatn
1 bolli rjómi, má vera rúmlega
500 gr. blandaður skelfiskur
2 msk. sætt Sherrý
Söxuð fersk steinselja og blandaðar sprettur til að skreyta með
2 osta langlokur, skáskornar í þykkar sneiðar
1-2 msk. smjör
1-2 hvítlauksrif, skorin eftir endilngu
Hér er á ferðinni sjúklega góð og einsföld skelfiskisúpa. Það er svo gott að fá sjóðheita og matarmikla súpu í kvöldmatinn, þessi tikkar í öll boxin. Þú getur blandað skelfisk tegundunum eins og þér finnst best, ég keypti box af blönduðum skelfiski í Costco, sem var mjög góður, allskonar góðgæti í boxinu, svo bætti ég risarækjum og krabba við. Bragðmikil og mettandi súpa, með dásamlegu smjör steiktu hvítlauksbrauði, til að dýfa í og borða með. Endilega prófaðu, hún er æði ;-)
Súpan: Olían er hituð í rúmgóðum potti, á meðalhita. Laukurinn, sellerí og gulrætur eru settar í pottinn og látið malla og mýkjast í olíunni, síðan er hvítlauknum bætt ú í pottinn og látið malla áfram í um 1 mín. Tómat-chili sósunni, paprikunni og cayenne piparnum er bætt út í grænmetið og látið malla í ca. 2 mín. Hveitinu er dreift yfir grænmetið og hrært vel saman með sleif, látið malla í ca. 1 mín. Kjúklingasoðinu er hellt varlega út í, á meðan hrært er í, svo ekki myndist kekkir. Látið malla rólega í ca. 10 mín. Potturinn er tekinn af hitanum og súpan maukuð með töfrasprota, það til hún er flauels slétt. Rjómanum er blandað út í súpuna og látin malla í 5-10 mín. áfram, þar til hún þykknar aðeins. Skelfisknum er bætt úr í og hitað upp að suðu, síðan er Sherrýinu bætt út í, í lokin. Smakkað til með salti, pipar og kryddi ef þarf. Ausið í skálar og kryddjurtir settar á toppinn. Borin á borð með hvítlauksbrauðinu.
Brauðið: Smjörið er brætt á pönnu og brauðsneiðarnar settar á hana og þær látnar brúnast svolítið á annarri hliðinni. Þegar þær eru orðnar djúp gylltar, á annarri hliðinni, eru þær teknar af pönnunni og sárinu á hvítlauknum er nuddað á ristuðu hliðina á brauðinu. Sett á disk og borið fram með súpunni.