F. 2
1 tks. ólívu olía
3/4 bolli gróf rifinn Parmesan ostur
4 egg
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
Egg eru dásamlegt, fullt hús matar. Við erum ekkert að flækja málin hér, förum lóðbeint í málið og pörum þau við parmesanost og steikjum svo herlegheitin. Osturinn veður stökkur og eggjarauðan mjúk og djúsý, einfaldari og ljúffengari verður morgunmaturinn varla!
Best er að nota smíðajárnspönnu sem eru vel "seasoned" eða teflonpönnu svo það sé auðvelt að ná eggjunum af pönnunni. Olíunni er dreyft í þunnu lag yfir pönnuna og hún hituð miðlungs heit. Ostinum er dreift í jöfnu lagi yfir alla pönnuna og honum leyft að bráðna og aðeins byrja að brúnast í jöðrunum. Þá eru eggin brotin yfir ostinn og þau steikt í 3-4 mín., þar til brúnirnar eru gylltar og stökkar. Ef osturinn dökknar of hratt skaltu lækka hitann á pönnunni. Smakkað til með salti og pipar.