F. 4
75 ml. rautt púrtvín
1 msk. balsamic edik
1 msk. hrásykur
1 msk. dökkur púðursykur
1 tsk. ferskt timian, grófsaxað
4-5 stórar bláar plómur, steinninn tekinn úr og skornar í fernt
Þú átt eftir að elska þessar, elegangt, svolítið súr sætar með fínlegu púrtvínsbragði. Frábærar með allskonar villi bráð :-)
Púrtvíni, balsamic ediki, sykri og timian, blandað saman í meðalstóran pott. Hitað á lágum hita þar til sykurinn er bráðinn, hrært í við og við. Plómunum er bætt út í og látið malla rólega í 5-8 mín., þar til þær eru mjúkar, en halda lögun sinni.