F. 4-6
1/2 kg. kartöflur, skrældar og skornar mjög þunnt á mandólíni
2 litil fennel, skræld og skorin mjög þunnt á mandólíni, geyma fallega laufið til að skreyta með
2 hvítlauksrif, fín söxuð
1 1/2 dl mjólk
2 dl rjómi
Sjávarsalt og nýmalaður pipar
Múskat, nýrifið af múskathnetu
Smjör til að smyrja pönnuna eða fatið með
4 msk. fín rifinn Parmesan ostur
3 msk. rifinn Tindur eða annar góður ostur
Kartöflugratín er frábært og ljúffengt meðlæti, með ýmsum mat, svo er mjög einfalt að búa til. Hér er boðið upp á kartöflugratín með fennel, sem er dásamleg viðbót við góðan rétt. Fínlegur anís keimurinn af fennelinu er yndi, gerir sannarlega góðan rétt bara enn betri. Endilega prófaðu þessa útgáfu af gratíni, þú verður ekki fyrir vonbrigðum :-)
Ofninn er hitaður í 180°C. Steypujárnspanna, eða fallegur glerdiskur með háum brúnum er smurður mjög vel að innan. Kartöflu- og fennelsneiðarnar eru lagðar til skiptis í lögum með hvítlauk, inn á milli í pönnuna eða fatið. Mjólk og rjóma er blandað saman í skál, smakkað til með salti og pipar og nýrifinni múskathnetu og síðan hellt yfir kartöflu- og fennelsneiðarnar. Þá er ostinum dreift yfir og pönnunni stungið í ofninn og bakað í 40 mín., þar til gratínið er gegn heitt, búbblandi og osturinn er orðinn gylltur.